De Verdad? No me digas!
Leitarbox

06.07.2008 22:18:04 / 81613

Lopapeysan 2008...Halelúja !

HAHAHAHAHAHAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA....

ég hef ekki fengið mér í tánna síðan í BCN...á seinasta ári nánar tiltekið...

En gærdagurinn var frábær....og lopapeysuballið snilld..

Sko byrjaði þannig að ég og Rebekka fórum upp skaga klukkan 4 um daginn, byrjuðum að drekka kl 5 og fórum í partí kl 10 ...Takk fyrir frábært partí Ásta...!:D

og svo fórum við á Lopann..og ég týndi öllum og fann alla og týndi öllum o.s. frv. eins og gengur og gerist...aðalparturinn var samt í enda ballsins þegar ég fann Helenu góðvinkonu mína..við fórum að dansa saman og svo kom troðningur á liðið og ég hélt bjórnum mínum beint út frá mér svo að það helltist ekki á mig heheh...nei þegar ég færði bjórinn aftur að mér þá var hann kramin saman eins og blað...einhverjar kjeeeellingar dönsuðum saman og krömdu hann...ekki mikið gagn af honum í framhaldi...Helena notaði bumbuna á annarri konu sem barborð á meðan hún var að dansa án þess að konan fattaði það haha...skil svo sem ekki hverskonar bumba það átti að vera...

Seinna þá leiddi ég helenu út af dansgólfinu og var svo mikill mannfjöldi og ég sá ekki hvern ég var að leiða en hélt í höndina á einhverjum og ég beið eftir að helena kom úr fjöldanum, en nei þá sá ég Hjört og hann var að nálgast mig, JEminn eini hélt að ég var að leiða hann, ég bara " ÓNEI"  og svo sá ég að helena hélt allann tímann í höndina á mér hehehhehe...fattaði ekki alveg að líta á höndina fyrst.....

Á leiðinni heim af ballinu var ég samferða Helenu og Regínu, aldrei hef ég skemmt mér eins mikið...sko það byrjaði að við ætluðum að fara í Olís að kaupa eitthvað að borða, á leiðinni sungum við blönduð barnalög og mixuðum þeim eins og við fengum borgað fyrir það, barnalög ekki alveg mín deild..bullaði bara eitthvað blandaði saman krummi krunkar úti og Adam átti syni sjö eitthvað álíka.....það var gaman,steypiregn lagið Rokkaði....Steypiregn ! steypiregn ! steypiregn...

Svo var lokað í Olís en bílalúgan var opin þannig að við þremenningarnir fórum í biðröð eftir bílunum semsagt tíu bílum, nenntum ekki að bíða það lengi en lentum í skrautlegum og skemmtilegum sönghóp fyrir aftan...sem söng okkur inn á svið ljúfleikans...

á leiðinni frá Olís og heim þá sáum við litla rútu sem stóð opin og stóð á Whale Excursions..og við bara " Skellum okkur í Hvalaskoðun" héldum að það væri í boði og löbbuðum að rútunni og spurðum hvort við mættum fara í hvalaskoðun, ætluðum inn í rútuna, héldum að þetta væru túristar og og allir í rútunni sprungu bara úr hlátri...og ég hló að manni sem skallaði sæti í rútunni...fannst það mjög fyndið (já einfaldur húmor) en þá sagði Helena " Hey þetta er Stebbi Hilmars...Hey já þetta er Sálin" og Regína bara eitthvað " Nei Helena þetta er ekkert Stebbi Hilmars" og Helena bara " jú þetta er hann "

og svo sá ég það líka þá var hann bara að springa úr hlátri af okkur þannig að við vinkuðum bara fallega...fannst það alveg nett fyndið...skil samt ekkert hvað þeir eru að hafa Whale Excursions á rútunni sinni....

Jæja svona er sagan af Lopapeysunni....´08

PS: Hélt ég væri að verða brjáluð á Evu með þessa fáránlegu flautu sína ALLT ballið alveg frá 1 til 4.....æji hún er samt fyndin!!! Reyndar snillingur!

» 1 hafa sagt sína skoðun

07.05.2008 21:30:47 / 81613

Hver man ekki eftir þessu!





ÍRSKIR DAGAR!!!
var svo gaman þarna!

langar að endurtaka aftur leikinn í ár....ef þið viljið og getið!















eða erum við orðnar of gamlar til þess.....?



» 4 hafa sagt sína skoðun

26.04.2008 23:00:36 / 81613

hvað segiði um að koma gömlu vélinni í gang aftur?

Jæja ef nokkra mánaða hlé þá ákvað ég að fara að skrifa aftur og þjálfa fingrafimina á takkaborðið.

Undanfarið hef ég verið að vinna í Smáralindinni, reyna að safna pening fyrir skólann sem ég vonast til að fara í á næsta ári. En nú er komið nýtt plan í brækurnar og það er að við skötuhjúin erum að plana að flytja aftur til barcelona í september í sumarið og sólina svona eiginlega og þá verð ég til jan ef ég kemst inn í skólann í jan....en einhver heyrði nú að María ætlaði að flytja með okkur eða hvað? Vinir hans Theo ætla að koma líka heyrði ég allavega sko....og þá leigja með okkur, en hver veit???

Þetta kemur allt í ljós en allavega ætla ég að eyða sumarfríinu í Barcelona og djamma af mér rassgatið ætla að reyna að fara í byrjun ágúst og vera í 2 vikur.

já það er margt nýtt á döfinni8)

Tvíburarnir dafna vel fór og heimsótti þá í dag, þeir eru svo miklar bollur og skrækilingar elska þá meira en allt og búnir að hárreita mig og ég er hálfsköllótt að aftan, alveg eins og þeir en ljótt samt þegar ég er með sítt hár þarna á milli...

Á leiðinni heim frá Skaganum og til Rvk þá vorum við að keyra hjá Ártúnshðfði í átt til rvk  mættum við ekki gömlum kall á bíl sem keyrði á móti umferð og á móti öllum til dæmis strætó og mér og öllum öðrum semsagt hann var á öfugum helming og jeppinn fyrir framan okkur var greinilega ekki að fatta að hann var að keyra á móti sér og snarbeygði inn á okkar akrein þannig að við snarbremsuðum, Gamli kallinn var á svona 90-100 km/klst heilbrigður kall NOT!!!!

Hann hefði getað valdið margra bíla árekstri og var á akreininni lengst til vinstri þar sem flestir taka fram úr og fara hraðast á bílnum sínum....Hjartað mitt sló svona 870 sinnum á mín....en já hef aldrei lent í svona áður..

Annað líka þegar við vorum að nálgast heimilið þá voru tveir menn út á götu að reyna stoppa fólk í bílum og ég vildi ekki stoppa en samt stóðu þeir á miðri götu að reyna fá mig til að stoppa og ég klessti næstum því á skilti og á bíl sem var að keyra á móti mér því ég vildi heldur ekki klessa á mennina og þeim fannst þetta eitthvað voða fyndið..held að þeir hafi verið á einhverju... en allavega slapp ég....

alveg furðuleg 40 mínútna ferð frá skaganum til rvk...hvað er að verða með fólk og umferðina hérna?

kveð í bili


» 4 hafa sagt sína skoðun

13.12.2007 22:04:08 / 81613

Hamingjuóskir Ástu og Evu:)

Vildi nýta tækifærið og óska Evu og Ástu til hamingju með strákana tvo, sonur hennar Evu ekkert smá stór strákur og sonur hennar Ástu hefur fengið nafnið Óskar Sindri mjög fallegt nafn, vildi óska ykkur báðum innilega til hamingju elskurnar mínar og hafið það gott með börnunum og fjölskyldunni, vá hvað þetta er fljótt að líða allt saman...alveg yndislegt!!

Lesendur góðir hafið það gott yfir jólin og gleðileg jól ef ég verð ekki búin að blogga aftur fyrir jól, hehehe er orðin frekar löt við þetta..heyrumst ;)

 

 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.10.2007 23:30:38 / 81613

26. Október 2007

Jæja í dag er maður orðin gömul kelling 22 gja......usss...jæja maður verður að sætta sig við það og vera bara ungur í anda það sem eftir er...enda er maður alltaf 16....

 

en allavega hafið það gott elskurnar mínar og njótið helgarinnar

 

knús og kossar!:D 


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.09.2007 22:35:09 / 81613

Nýtt tímabil...

Jæja þá er ég komin heim og loksins farin að skrifa aftur heima á kalda íslandinu góða...er byrjuð að vinna í Meba í Smáralind sem er bara mjög góð og skemmtileg vinna er mjög ánægð með það, byrjaði viku eftir að ég kom heim og svo er ég flutt í Breiðholtið og er að gera íbúðina upp semsagt taka hana alveg í gegn, og svo eru það stóru fréttirnar Theo er að koma til mín frá Svíþjóð og við ætlum að búa saman hérna í Breiðholtinu og hlakka svo til að sjá hann aftur get ekki beðið....

 

Hann kemur 12 sept. og ég sæki hann á flugvöllinn...og var að fá skemmtilegar fréttir frá þeim Marellu og Birgittu elskunum mínum að fótboltinn er farinn að rúlla aftur upp á skaga hjá stelpunum, ætli maður ætti ekki bara að skella sér og hreyfa á sér rassgatið sem varð frekar stórt eftir barcelona, neinei segi svona. Langar bara til að spila fótbolta aftur með þeim gömlu góðu...

Segi þetta gott í bili

hafið það gott lesendur góðir...;)

 


» 11 hafa sagt sína skoðun

18.08.2007 08:53:23 / 81613

Endapunkturinn...

Jæja þá er þessu ferðalagi að enda og  ég að koma heim í nótt með pabba og frænku minni...semsagt seinasta færslan hérna úti, þarf að fara úr íbúðinni eftir 40 mín og upp á hótel til pabba og Hönnu frænku....

 

Þetta hefur verið yndislegt ferðalag og búin að læra heilan helling og kynnast fullt af fólki en segi ykkur meira frá því seinna....þarf að klára að pakka saman og koma töskunum út...

heyri í ykkur fólk...:P

 

Hlakka til að sjá ykkur stelpur!!!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.08.2007 21:57:14 / 81613

ég....

Fullt nafn:Brynja Valdimarsdóttir

 Nikk/gælunafn: Flóni, Blundul, Blynjólfur,hommi,sonur, og margt fleira sem stelpurnar kalla mig....

Hár: já er með hár.....

 Hæð:1 m.

 Staður:Barcelona eins og er

Aldur:21 árs og 10 mánaða...

 Afmælisdagur:26 okt..

 Tattoo: neibb langar ekki í

Göt: jájá nokkur...

Uppáhalds.......... Matur? eins og er Mexikanskur matur sérstaklega hérna á Spáni, jú og tyrkneskur Kebab með kjúkling hérna megin á hnettinum.....mmmmmm svo gott!!!

Drykkur: Bjór og Vatn....muy necesario.....

Veitingastaður: Cor Caliu hérna á horninu á Mallorca götu....

Vikudagur: Los Sabádos...

 Sjónvarpsþáttur: Glæstar vonir og Leiðindaljós...:S

Litur:  Ljósblár og Fjólublár @ the moment...

Flíkin:Fjólublái kjóllinn sem ég keypti í gær, shitt hvernig á ég að koma fötunum heim sem ég hef keypt hérna...flugvélin mun hrapa....

Leiðinlegasta sem ég geri: Setja jólaseríur í gluggann, skipta á rúminu (flækist alltaf í þessu leiðinlega laki) og bursta tennur stundum...og að leiðast er mjög leiðinlegt....þetta getur komið mér ...jú og ryksuga....en þetta kemur mér alltaf í vont skap...!

 Leiðinlegasta spurningin: eru spurningar eins og t.d þessi..nenni ekki að svara þessu...

Þögul? jámms frekar oft, segi bara það sem mér finnst nauðsynlegt annað ekki

Feimin? já get verið það fer eftir aðstæðum....

Skrýtin? jáhá, stundum botna stelpurnar ekkert í mér

Sjálfselsk? já get verið það held ég...

 Villingur? nei

Vond: nei

Cool? nei ekki kúl

 Móttækileg leyndarmálum: þar sem ég er með gullfiskaminni þá geta allir sagt mér leyndamál því ég gleymi því hvort eð er strax og svo þegar ég heyri það aftur þá er ég alltaf jafn hissa....!:O

Leiðinleg? Get verið það þegar ég er þrjósk... 

Pirrandi? uhhh kannski eitthvað veit samt ekki...

Fyndin? nei tel mig ekki vera fyndna..

 Fullkomin? ætla ekki einu sinni að svara þessu...

 Símanúmerið? 6923778

 Vandræðalegasta sem þú hefur lent í: æji nenni ekki að telja það upp...

Hvern talaru oftast við í símann? Foreldra mína eins og er...enda mamma svo spennt með kærastann..hehhe

 Enska deildin? Já há LIVERPOOL RÚLAR!!!!!!! only one Steven Gerrard...

 Sundlaug eða heitur pottur? ef er kalt þá heiti pottur ef heitt þá sundlaug

Fannst þér gaman í grunnskóla? já mjög gaman;)

Hlustaru á tónlist daglega? já

Hrýturu?  kemur fyrir held ég.....annars er ekki mikið að fylgjast með mér þegar ég er sofandi...

Púðluhundur eða Rottweiler? Púðluhundar eru eitthvað allt annað en hundar, sá hérna um daginn bleikann púðluhund með bláhærðri 89 ára gamalli konu...mjög skemmtileg og frumleg sjón, vorkenndi samt hundinum mikið fyrir að vera með svona klikkaðri konu...það var eins og hann hafi farið í litun og svo í þvottavélina ...greyið litla.....KÝS ROTTWEILER!

 Hvernig viltu að augun þín séu á litin? eins og þau eru núna, vildi samt alltaf græn einu sinni og svo blá....en er sátt í dag...

Strokið að heiman? Nei aldrei

Ollið einhverjum ástarsorg? nei held ekki sko.....annars veit ég ekkert um það...

 Verið ástfangin? Er ástfangin í dag og á yndislegann kærasta!!!;)

 Langað í e-h sem þú getur ekki fengið? já hafa það ekki allir....

Brotið bein? nei 7,9,13, bank bank bank!

 Guð? já held það bara

Drauga? já

Kraftaverk? já

 Ást? jáhá!

Hverju tekuru fyrst eftir hjá strákum? Augunum, andlitinu, vörunum, brosinu og stílnum held ég ....

Stutt eða sítt hár? bæði líkar það bæði fer notulega eftir klippingunni, en í augnablikinu veik fyrir stutthærðum.....

 Hvað kemur þér til að hlægja? Fjölskyldan, vinir,Theo,spænskir pimpar, gamlar bleikhærðar konur og Regína!

Hvað fær þig til að brosa? er yfirleitt alltaf brosandi þarf ekki mikið til að fá mig til að brosa, er bara hamingjusöm, það nægir

 Er einhver skotinn í þér? Ætla rétt að vona að kærastinn minn sé skotinn í mér...

Hver knúsar þig? Vinkonur mínar, fjölskyldan mín, Theo og Bína Bangsi.....(sjúga þumal)

Áttu kærasta? Jámms alveg hreint út sagt bráðmyndarlegur herramaður!

Verið með spangir? uhhh verð nú að viðurkenna að ég var nörd...með spangir sem voru stærri en hausinn á mér:S

Plokkað augnabrúnirnar? jájá ....

Langar þig að verða 100 ára? nei held bara ekki...

Ertu hamingjusöm? Er það svo sannarlega!!!!:D Hef allt sem ég þarf!

Hvað varstu gömul þegar þú hættir að trúa á jólasveininn? 9 ára held ég...

Hvaða hluti ertu alltaf með á þér? símann,veski og hárkolluna....og límtúbuna....

 Sátt við nafnið þitt? Já...

Helduru að hægt sé að vera trúr einni manneskju alla ævi? Já það ætti að vera möguleiki..

 Helduru dagbók? Bloggið er eins konar dagbókin mín ...

Kemur það fyrir þig............ Að þú óskir þess að vera e-h önnur en þú ert? auðvitað var það þannig en nú er ég sátt og vill ekki vera nein önnur!;)

 Óskir þess að vera strákur? Þegar ég var 5 ára, reyndi alltaf að pissa standandi...

Óskir þess að líta öðruvísi út? nei vil ekki vera öðruvísi..núna en vildi það einu sinni held ég eins og flestar stelpur

 Myndiru giftast fyrir peninga? Pure and simple nei, vil ekki vera Trouve-Wife....! það er alveg ömulegt...

 Ást við fyrstu sýn? ekki kannski beint ást en eitthvað sem kveikir í manni....!


» 10 hafa sagt sína skoðun

19.07.2007 14:30:31 / 81613

hvað er að frétta?

Well well weeeelllll....er það ekki bara ný færsla skal ég segja ykkur....

jæja er búin að vera frekar löt við skólann undanfarið enda búin að vera hérna í næstum 5 mánuði, er að fara í próf á næsta miðvikudag til að fara á næsta stig...usss það verður örugglega erfitt, en maður reynir....

en þar sem er bara mánuður í heimkomu, þá væri ég alveg til í smá hitting þegar ég kem heim. Langar að sjá alla og kyssa alla og knúsa ...sakna ykkar rosalega mikið.

En langar líka að vita hvort að það eru einhverjir að fara á Noruh Jones tónleikana 2 sept.?

PABBI ER AÐ KOMA TIL MÍN 15 ÁGÚST HLAKKA SVO TIL AÐ SJÁ HANN!!!

Held að Theo sé svoldið stressaður að hitta hann hehehe....enda sýndi ég honum mynd af pabba og sá bara kökkinn sem rann niður í hálsinum á honum, enda pabbi ekkert lítill kall ef þið hafið séð hann hahahah! Veit að pabba hlakkar til að sjá hann, og mamma alveg óð! " Taktu myndir kona, langar að sjá hann!!!!" og farðu svo að koma með börn!!! neinei segi svona en veit samt að hún hugsar svona enda safnar hún krökkum heim til sín...

en fer að segja þetta gott í bili ætla út í góða veðrið....;)

heyri í ykkur......vonandi hehe

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

24.06.2007 19:20:41 / 81613

24 Júní 2007

Jæja ....er búin að gera nkl ekkert í dag og er rosalega stolt, jújú lærði aðeins áðan og þarf að læra meira í kvöld þarf að skila inn ræðu á morgun í 5-10 mín ásamt spurningum á morgun og er ekki byrjuð....veit ekki einu sinni um hvað efnið á að vera?

 Fór á Fiesta de San Juan í gær á ströndinni, alveg ágætt bara og fullt af fólki, flugeldar og læti....var samt frekar kalt...

Christina DK vinkona er farin heim til DK, sakna hennar ekkert smá enda búnar að búa saman í 3 mánuði og svo er hún allt í einu farin, var ekkert smá erfitt að kveðja hana8| En ég mun heimsækja hana þegar ég fer næst til DK....:haha:

Er í þessum um töluðu orðum að horfa á Jurassic Park 2 hérna á Spáni, já þau eru svoldið eftir á hérna í suðrinu, og plús það, þá er myndin talsett á spænsku þannig að sami maðurinn er að tala fyrir allar karlpersónurnar og sama konan að tala fyrir allar kvenpersónurnar, það finnst mér svoldið fyndið og alveg hörmulega glatað....

Akkurat í dag þá eru 8 vikur þangað til ég kem heim,langar samt ekkert virkilega heim en hlakka til að sjá alla;) Það verður erfitt að kveðja þessa borg, er búin að koma mér svo vel fyrir hér....

Finnst alveg yndislegt að Karitas hélt að það ætti að vera Sálarball á Breiðinni, og allt vegna gamallar auglýsingar sem Bylgjan gaf út fyrir stuttu! hahahahah get ekki hætt að hlæja....:!:

En já hef það bara fínt eins og er ....bið að heilsa öllum heima og hafið það gott...sakna ykkar lúsir!:P

 

 

 


» 12 hafa sagt sína skoðun

16.06.2007 19:56:19 / 81613

Róm here I come....

 

Isss hvað maður er komin sterklega í Samba stílinn, elska Samba!!!! Samba da Baiha...Samba da Baiha...en út í allt aðra sálma

Páfinn hringdi í mig um daginn og vildi fá mig í kaffibolla og spjalla um það helsta sem er á brennidepli í heimsmálunum, á sínum 1000 tungumálum. Og auðvitað þáði ég það boð, þannig að ég er að fara í Vatíkanið fyrstu helgina í júlí 30 - 2 júlí.....Þetta verður sko áhugavert

en svona í alvöru þá er ég að fara til Ítalíu, nánar tiltekið Rómar eftir 2 vikur, kaffiboðið með páfanum voru örlitlar ýkjur....hlakka ekkert smá til að heimsækja Vatíkanið og sjá allar byggingarnar....

Það helsta sem er í fréttum hérna á Spáni er rígurinn á milli Madrid og Barcelona um titilinn það er ekkert annað í fréttum nema það, enda ekkert smá spennandi hver hreppir titilinn á morgun á Þjóðhátíðardegi Íslendinga.....krossum fingur að það verði Barca plís plís.....þá get ég fagnað vel á þjóðhátíðardeginum okkar bara í öðru landi.....hefur aldrei verið svona jafnt á milli liða og deildin hefur aldrei verið svona jöfn.......

Komin yfir í næsta áfanga í spænskunni, sem er ekkert nema gott mál og vonandi heldur það áfram:D

Já eitt sem gerðist um daginn það var einhver ógeðisÓGEÐISpadda að skríða á handleggnum mínum þegar ég var í herberginu mínu.....og auðvitað öskraði ég og hljóp um eins og amaniac og fór fram á gang öskrandi og hoppandi og hlaupandi í hringi og stelpurnar sem búa með mér ....haha hefðuð átt að sjá svipinn á þeim, ekkert smá skelkaðar með opinn munninn og stór augu, enda flestar frá Brasilíu og þær eru vanar að láta kakkalakka skríða á sér svo tjékkuðu þær á pöddunni sem var að skríða á mér, hún var 2 mm og glær og þær sprungu úr hlátri og hættu bara ekkert það sem eftir lifði af deginum, skammaðist mín svoldið......:^) og svo spurðu þær mig hvort við hefðum einhverjar hættulegar pöddur á Íslandi " nei sagði ég, en við höfum bara býflugur" og þá skellihlógu þær aftur" því ég sagði býflugur....ÉG SAGÐI NEI!!!!.......býflugur geeeeeeeeeeeeeta alveg verið oggupoggu hættulegar, bara smá sko.....

En jæja hætt þessum kjaftagangi ætla að ljúka þessu bréfi með þessum orðum.....

Er farin að fá mér bjór!

PS: já og þið sem ætlið að skemmta ykkur í kvöld á 16. Góða skemmtun og hafið það magnað á morgun hehehe......!

Kossar og knús....!;)

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

07.06.2007 18:50:56 / 81613

Segjum að svo sé....

Jámms og jæja....þá er maður að blogga aftur..

Næsta helgi verður viðburðarrík fer á lokaleikinn á Nou Camp á laugardaginn, seinasti heimaleikurinn..hlakka ekkert smá til, verður örugglega rosaleg stemmning.

og Heiður ætlar að koma og heimsækja mig frá Madrid um helgina á laugardag til sunnudags, hlakka líka rosa til að sjá hana.:D Vonandi djömmum við af okkur rassgatið heheh....en já ætlum á ströndina á laugard. enda á að vera rosa gott veður yfir helgin hiti og sól.....una cerveza por favor?

Síðan var ég að sjá að Norah Jones ætlar að spila í Laugardalshöllinni 2 Sept. pant fara enda BIG FAN....!!!! hún er alveg ótrúlegur listamaður, alveg hreint mögnuð...sérstaklega nýja platan hennar...Not too late..langar rosalega að sjá hana syngja live......má ég má ég.....;)

ummmm...hef voða lítið annað að segja......

Bæ..!

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

04.06.2007 17:37:58 / 81613

....


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.05.2007 13:06:17 / 81613

svona er lífið....

HANN HEITIR jONATHAN.....en vonbrigðin eru þau að hann hættir í skólanum á morgun:$:cry:

» 7 hafa sagt sína skoðun

28.05.2007 19:59:10 / 81613

Do something!

Jæja þá er "Spánverja-homminn" hennar Ragnheiðar búin að skrifa færslu fyrir hana.....

Búin að komast að því hvaðan hann er en ekki nafnið hahah......hann er franskur haha jussi mussi sussi....Je´mappelle Brynja.....guapo! er maður að blanda frönsku og spænsku rosa er maður góður marr, ætla að komast að nafninu fyrir næstu færslu, já ég veit góðir hlutir gerast hægt ekki satt?

 

Það er svo hvasst hérna að manni finnst maður bara komin á klakann aftur, en það sem er svo pirrandi er að það er alltaf eitthvað að fjúka í augun á manni, búin að fá allann fjanda í augun á mér name it..er bara að bíða eftir að stóll fjúki í augað á mér, haha pældu í því að mæta bara með eitt stykki stól í augað í skólann...." hey já góðan daginn, já einmitt ég kom bara með minn eigin stól, þannig að ekkert vera að reyna að hafa fyrir því að leita að stól fyrir mig....(það eru svo margir nemendur í bekknum mínum að yfirleitt vantar stóla fyrir okkur)!

og svo á leiðinni í skólann fer ég alltaf framhjá elliheimili....og maður sér svona gamalt fólk sitja í stólum með dagblöð við gluggann, finnst alltaf jafnfyndið að sjá þau sofandi sitjandi í stólnum með dagblöðin í höndunum og það er ekkert ein manneskja heldur bara svona 5-6 manneskjur sem eru sofandi bara kl 9 á morgnanna í stólunum með dagblöð í glugganum, skemmti mér alveg lúmskt við þetta....svona mesta tilhlökkunarefnið á leiðinni í skólann...

og svo hef ég yfir einu að kvarta það er stelpan í supermarkaðnum hérna á horninu hún er svo vond manneskja í alvöru, algjör dóni og kann ekki að aðstoða fólk, og bara frek og öskrar á fólk og viðskiptavini...fer örugglega alltaf öfugt framúr á morgnanna.... Ef það væri maður sem stæði við hliðiná henni og væri búið að kvikna í honum og hann væri allur alelda, hún myndi ekki einu sinni gera tilraun til að pissa á hann til að slökkva í honum.....algjör dóni bara!!

En já hef ekki komist á MSN í nokkra daga kemst ekki inn eitthvað troubleshoot....

Fór á leikinn á laugardaginn Barcelona-Getafe, missti notulega af markinu sem var á fyrstu mín og sá svo þegar Ronaldinho fékk rautt spjald en sá ekki hvað hann gerði....vissi svo að hann sparkaði í punginn á einum leikmanninum....var mjög fínn leikur og andrúmsloftið magnað allir geggjað spenntir!

Já fínt að þeir hafi unnið....:D og þá er það næsti leikur hérna á Camp Nou 10 júní hlakka geggjað til Sjibbý!!!!!!

en já segi þetta bara gott í bili.....hafið það gott vesalingar!

 

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8